Aðalfundur 14. nóvember 2026

Kæru félagar

Vil minna á aðalfund Vina Þjórsárvera og Pálínuboðið sem verður haldið í fræðslusetri Landverndar í Alviðru, laugardaginn 14. nóvember kl. 12.00

Í fyrri pósti sem sendur var út 28.10. láðist að geta þess hvert árgjaldið er, en það er 1.000kr. Vinsamlega greiðið inn á reikning: 0536-26-014501  kt: 501111-0150.

Dagskrá aðalfundar er: 

  1. Setning
  2. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  3. Skýrsla stjórnar
  4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram
  5. Ákveðið árgjald
  6. Lagabreytingar
    1. Tillaga frá stjórn um að breyta 4.gr. laga lið a) en þar stendur nú: Aðalfund Vina Þjórsárvera skal halda fyrir 1. ágúst ár hvert”. verði breytt í: Aðalfund Vina Þjórsárvera skal halda fyrir 1. desember ár hvert.
  7. Kjör eins skoðunarmanns reikninga
  8. Kjör stjórnar
  9. Önnur mál

Að aðalfundi loknum verður boðið upp á gönguferð um nágrennið undir leiðsögn Tryggva Felixsonar. Við höfum mörg gengið með Tryggva um Þjórsárver og kannski rifjast upp góðar minningar við að rölta með honum á ný… en það verður þó ekkert vaðið yfir ár! Munið að hafa með klæðnað eftir veðri og skó til að ganga í. 

Verið er að setja efni inn á heimasíða félagsins vinirthjorsarvera.is

Verndum Þjórsárver!

Með bestu kveðjum
Sigþrúður Jónsdóttir

Þessi færsla var birt undir Uncategorized. Bókamerkja beinan tengil.