Kæru félagar
Vil minna á aðalfund Vina Þjórsárvera og Pálínuboðið sem verður haldið í fræðslusetri Landverndar í Alviðru, laugardaginn 14. nóvember kl. 12.00
Í fyrri pósti sem sendur var út 28.10. láðist að geta þess hvert árgjaldið er, en það er 1.000kr. Vinsamlega greiðið inn á reikning: 0536-26-014501 kt: 501111-0150.
Dagskrá aðalfundar er:
- Setning
- Kjör fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram
- Ákveðið árgjald
- Lagabreytingar
- Tillaga frá stjórn um að breyta 4.gr. laga lið a) en þar stendur nú: Aðalfund Vina Þjórsárvera skal halda fyrir 1. ágúst ár hvert”. verði breytt í: Aðalfund Vina Þjórsárvera skal halda fyrir 1. desember ár hvert.
- Kjör eins skoðunarmanns reikninga
- Kjör stjórnar
- Önnur mál
Að aðalfundi loknum verður boðið upp á gönguferð um nágrennið undir leiðsögn Tryggva Felixsonar. Við höfum mörg gengið með Tryggva um Þjórsárver og kannski rifjast upp góðar minningar við að rölta með honum á ný… en það verður þó ekkert vaðið yfir ár! Munið að hafa með klæðnað eftir veðri og skó til að ganga í.
Verið er að setja efni inn á heimasíða félagsins vinirthjorsarvera.is
Verndum Þjórsárver!
Með bestu kveðjum
Sigþrúður Jónsdóttir