Fjörutíu ár eru nú liðin síðan barátta heimamanna í Gnúpverjahreppi fyrir verndun Þjórsárvera hófst.
Hinn 17. mars 1972 boðaði landgræðslunefnd Ungmennafélags Gnúpverja til almenns sveitarfundar um Þjórsárver og þá ógn sem steðjaði að þeim vegna hugmynda um risastórt miðlunarlón sem hefði sökkt verunum. Þessi atburður markaði upphaf varðstöðunnar um Þjórsárver.
Fundurinn var fjölmennur og stóð fram á nótt. Þar kom fram einhugur um að vernda bæri Þjórsárver. Samþykkt var ályktun þar að lútandi, og til er ítarleg fundargerð. Þegar hún er lesin, 40 árum síðar, er ljóst að þessi fundur skipti sköpum um framgang mála á þeim tíma og sennilega alla tíð. Baráttan fyrir verndun Þjórsárvera hefur staðið nær samfellt síðan og margir mikilvægir áfangasigrar unnist.
Í tilefni þessara tímamóta boða Vinir Þjórsárvera, Áhugahópur um verndun Þjórsárvera, Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands til afmælisdagskrár í félagsheimilinu Árnesi. Skyggnst verður inn í tíðarandann í Gnúpverjahreppi fyrir fjörutíu árum, litið yfir farinn veg og horft til framtíðar.
Meðal framsögumanna eru Birgir Sigurðsson rithöfundur, sem var einn þeirra sem stóðu fyrir fundinum árið 1972, Gísli Már Gíslason prófessor og formaður Þjórsárveranefndar og Helga Ögmundardóttir mannfræðingur sem hefur rannsakað bakgrunn þess að Gnúpverjar tóku sér svo afgerandi stöðu með náttúrunni, óbyggðunum og fuglum himinsins. Flutt verður tónlist og kaffiveitingar verða á boðstólum.
Samkoman verður haldin í félagsheimilinu Árnesi laugardaginn 17. mars og hefst kl. 14.