Aðalfundur 2026

Aðalfundur Vina Þjórsárvera verður haldinn  í fræðslusetri Landverndar í Alviðru, laugardaginn 14. nóvember kl. 12. Haldið veður „Pálínuboð”  þannig að fólk tekur með sér veitingar og við snæðum saman í hádeginu en félagið býður upp á kaffi og te.  Eftir hádegisverð verða aðalfundarstörf, fræðsla og gönguferð svo fremi sem veður verður tiltölulega þokkalegt. Alviðra er staðsett undir Ingólfsfjalli við Biskupstungubraut um 10 km norður af Selfossi, á mótsvið Þrastarlund við Sogið.

Minnum á félagsgjaldið og nú er áríðandi að það sé greitt þar sem félagið stendur í málaferlum vegna leiðigarðs sem Landsvirkjun vill reisa sunnan Þjórsárjökuls, innan friðlands Þjórsárvera.

Vinsamlega greiðið inn á reikning: 0536-26-014501  kt: 501111-0150

Nánar verður sagt frá dagskrá er nær líður.

Með bestu kveðjum
Sigþrúður Jónsdóttir

19. ágúst 2026. Hoft af Arnarfelli til austurs.

Þessi færsla var birt undir Uncategorized. Bókamerkja beinan tengil.