
Félagið Vinir Þjórsárvera stendur fyrir þriggja daga göngu að Arnarfelli hinu mikla. Brottför er áætluð 17, 18 eða 19. ágúst. Brottfarardagur ræðst af veðurspá. Heimkoma áætluð 19. 20. eða 21. ágúst. Gistinætur í tjöldum eru tvær, jafnvel þrjár. Skýrist þegar nær dregur.
Brottför kl. 06:00 frá Árnesi á eigin bílum (jeppar). Dagleiðir í göngu eru á bilinu 6 til til 15 km. og er hæðarmunur lítill, að Arnarfelli frátöldu. ((Sá valkostur er að fara af síðdegis og tjalda við Hreysiskvísl til einnar nætur verður skoðaður síðar í samráði við þátttakendur)
Gengið verður frá Hreysiskvísl austan Þjórsár að hinu margrómaða blómum skrídda tjaldstæði undir Arnarfelli með leiðsögn reyndra Þjórsárverafara. Þar heyrist hjarta landsins slá og landið okkar tekur á sig nýja mynd.
Þjórsárver eru veröld andstæðna, friðland með alþjóðlega stöðu sem Ramsarsvæði. Jökullinn og vatnið sem frá honum streymir sem ár, lækir, kvíslar og tjarnir eru lífæð gróðurs og dýra. Þar sem þessi lífæð nær ekki til, blasir við auðn og eyðimörk. Undir gróðrinum leynist svo víða sífreri. Þar sem gróður klæðir sífrera í íslensku sumri verður til heillandi mósaík.
Gist í tjöldum. Góðir vaðskór þurfa að vera meðferðis.
Fararstjóri: Tryggvi Felixson
Leiðsögn: Sigþrúður Jónsdóttir og Axel Árnason Njarðvík
Þáttökugjald er 7.000 kr. fyrri félaga og rennur sem framlag í sjóð Vina Þjórsárvera, en 10.000 fyrir aðra. Auk þess deilum við aksturkostnaði í einkabílum.
Frekari upplýsingar og skráning til þátttöku: Tryggvi í síma 699 2682, netfang tryggvifel@gmail.com og Sigþrúður í síma 846 5247 og netfangi gibba@pax.is