Tryggvi Felixson skrifar:
Sumarferð í Þjórsárver er orðin fastur liður í lífi mínu. Ég hef víða farið um hálendið og upplifað friðsæld og fegurð þess. Það er sannkölluð lífsfylling. En það er eitthvað alveg sérstakt sem kallar í Þjórsárverum. Hér eru 10 ástæður fyrir því:
1. Hjarta landsins
Náttúrufræðarinn okkar góði, Guðmundur Páll heitinn, hefur lýst því að í Þjórsárverum sé að finna hjarta landsins. Hann hefur rétt fyrir sér. Ég hef heyrt hjarta landsins slá þar þegar sólin slær geislum sínum á Hjartafell.

2. Veröld andstæðna
Þjórsárver er veröld andstæðna. Jökullinn og vatnið sem frá honum streymir sem ár, lækir, kvíslar og tjarnir eru lífæð gróðurs og dýra. Þar sem þessi lífæð nær ekki til, blasir við auðn og eyðimörk. Undir gróðrinum leynist svo víða sífreri. Þar sem gróður klæðir sífrera í íslensku sumri verður til heillandi mósaik.
3. Magnað landslag
Landslagið er bæði stórfenglegt og fagurt. Tindar Kerlingarfjalla í vestri, ávalar bungur Hofsjökuls í norðri og austar svipmikið Arnafell hið mikla. Víðátta Sprengisands og virðuleiki Tungnafellsjökuls taka við þegar litið er til austurs. Í fjarska mót suðaustri gnæfa Vatnajökull og Hágöngur sem vörður í landinu.

4. Mögnuð víðerni
Í Þjórsárverum ertu úr alfaraleið. Færri en 50 manns leggja leið sína að Arnarfelli hinu mikla að sumarlagi. Vissulega heyrist af og til í flugvél og á góðum degi má ofan af Arnarfelli sjá rykský eftir bíl sem ekur í fjarlægð eftir Kvíslaveituvegi. Þrátt fyrir það er sterkari víðernisupplifun erfitt að finna annarsstaðar á okkar landi.
5. Sífelldar breytingar
Þjórsárver koma sífellt á óvart. Þó þú hafir gengið um svæðið ótal sinnum heldur það áfram að koma þér á óvart. Vatnafarið breytist frá ári til árs. Jökulföllin breyta um farveg og eira engu. Þú situr í gróðursælum múla eitt árið og ári síðar hefur vatnsflaumur skolað honum til sjávar. Þar sem áður var lítil spræna breytist í strítt fljót þar sem lengi þarf að leita að vaði til að komast áfram.

6. Heiðargæsin
Þjórsárver eru kunn fyrir mikla heiðagæsabyggð. Maður finnur fyrir návist heiðargæsar hvar sem maður stígur. Engu að síður er hægt ganga um svæðið svo dögum skipti án þess að sjá svo mikið sem eina gæs.
Gæsirnar verða jafn undrandi og þú sjálfur. Ógleymanlegt!
„En einn góðan dag ertu á gangi og kemur fyrir öldu; skyndilega mætir þú þúsundum gæsa í sárum.“
7. Einfalt líf
Aðgengið að Þjórsárverum er erfitt. Allt sem þú þarft til að lifa af þarf að komast fyrir í bakpokanum. Menn taka engan óþarfa með. Ekki frekar en Fjalla Eyvindur sem í verunum dvaldi á sínum tíma. Ganga um Þjórsárver er sönnun þess að einfalt líf er gott líf.

8. Á heimsmælikvarða
Þjórsárver gætu orðið hornsteinn í hálendisþjóðgarði. Ef marka má þar til bæra erlenda sérfræðinga, gæti svæðið og umhverfið verið framlag Íslendinga á heimsminjaskrá Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna ásamt Þingvöllum og Surtsey sem þar eru fyrir. Það er góð tilfinning að spóka sig á svæði á heimsmælikvarða.
9. Baráttuganga
Ef það hefði ekki verið fyrir baráttu heimamanna í Gnúpverjahreppi, sem samhentir stóðu upp í hárinu á virkjunarmönnum um langt ára bil, hefði friður á þessu svæði verið úti og grundvallar eiginleikum þess spillt.
Það er rík ástæða til að vera þakklátur því fólki sem með baráttu sinni hefur komið í veg fyrir virkjanaframkvæmdir í og við Þjórsárver. Það skildi að unaðsstundir geta verið verðmætari en kílóvattstundir. Og baráttunni er engan veginn lokið.
Orkuþursarnir hafa flegið marga og feita bita af náttúru Íslands. En það seðjar ekki orkuþorstann! Þeir vilja enn fá vænan bita af svæðinu. Ganga um Þjórsárver er baráttuganga gegn sjónarmiðum orkuþursa sem skilja ekki að til eru aðrir mælikvarðar á velferð þjóðar en kílóvattstundir.
10. Gersemi þjóðar
Þjórsárver eru þjóðargersemi, eins og handritin. Virði þjóðargersema vex við kynni.
Hittumst heil í Þjórsárverum!
Birtist í Stundinni 16. mars 2015