
Aðalfundur Vina Þjórsárvera verður haldinn í fræðslusetri Landverndar í Alviðru, laugardaginn 14. nóvember kl. 12. Haldið veður „Pálínuboð” þannig að fólk tekur með sér veitingar og við snæðum saman í hádeginu en félagið býður upp á kaffi og te. Eftir hádegisverð verða aðalfundarstörf, fræðsla og gönguferð svo fremi sem veður verður tiltölulega þokkalegt. Alviðra er staðsett undir Ingólfsfjalli við Biskupstungubraut um 10 km norður af Selfossi, á mótsvið Þrastarlund við Sogið.
Minnum á félagsgjaldið og nú er áríðandi að það sé greitt þar sem félagið stendur í málaferlum vegna leiðigarðs sem Landsvirkjun vill reisa sunnan Þjórsárjökuls, innan friðlands Þjórsárvera.
Vinsamlega greiðið inn á reikning: 0536-26-014501 kt: 501111-0150
Nánar verður sagt frá dagskrá er nær líður.
Með bestu kveðjum
Sigþrúður Jónsdóttir

19. ágúst 2026. Hoft af Arnarfelli til austurs.